Century Aluminum, móðurfélag Norðuráls, hefur gengið frá samningum um kaup á bandarísku álveri af Rio Tinto Alcan, móðurfélagi álversins í Straumsvík. Um er að ræða Sebree álverið í Kentucky, en þar starfa nú um 500 manns og framleiðir álverið um 205.000 tonn af áli árlega.

Century mun greiða 61 milljónir dala, eða andvirði um 7,2 milljarða króna, fyrir álverið í Kentucky, en kaupin eru háð samþykki raforkufyrirtækisins Kenergy, sem selur orku til Sebree álversins. Raforkusamningur Sebree og Kenergy rennur út í lok janúar á næsta ári.