Chris McClure hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri söluvefsíðunnar Bland.is. Chris tekur við starfinu af Katrínu Jónsdóttur.

Chris hefur fjölþætta reynslu af stjórnunarstörfum, en áður hefur hann starfað við rekstur eigin stefnumótunar- og markaðsfyrirtækis, sem sérhæfði sig í að þjóna fyrirtækjum í heilsugeiranum.

Auk þess starfaði hann sem yfirmaður rannsókna og stefnumótunar hjá Health Management Academy, og hann vann hjá GetWellNetwork um skeið.

Chris hefur doktorsgráðu frá HÍ og meistaragráðu frá Yale-háskóla. Hann er kvæntur Kristínu Kristinsdóttur og eiga þau saman tvö börn. Hjónin eru búsett í Hafnarfirði.