Bandaríski bílaframleiðandinn Chrysler ætlar að ráða 1.000 verkfræðinga og aðra hátæknimenntaða starfsmenn á næstu 4 mánuðum. Þetta kemur fram á vef WSJ. Markmiðið með ráðningunum er að auka þróun á minni og meðalstórum bílum. Chrysler er í eigu ítalska bílaframleiðandans FIAT.