Cintamani hefur keypt húsnæði og rekstur hjólabúðarinnar GÁP í Faxafeni 7. Í fréttatilkynningu er tekið fram að verslunin verði áfram á sama stað. Samningagerð og ráðgjöf var í höndum Davíðsson lögfræðistofu.

Meðal vörumerkja GÁP eru Cannondale, GT, Mongoose og Kross. Til stendur að bæta stórauka vöruúrvalið, meðal annars með vörum frá Cintamani.

Í kjölfar kaupanna var gerður samstarfssamningur um rekstur vefverslunarinnar Adidas.is sem rekin hefur verið í Faxafeni af Sportmönnum, umboðsaðila Adidas á Íslandi undanfarinn áratug. Cintamani bætist þar með í hóp viðskiptavina Sportmanna sem endursöluaðili Adidas.

Einar Karl Birgisson, framkvæmdastjóri Cintamani:

„GÁP er þekkt reiðhjólaverslun, stofnuð og rekin af sömu fjölskyldunni frá árinu 1980.  Verslunin er með góð umboð sem eru þekkt fyrir mikil gæði. Mörg tækifæri felast í þessum kaupum og að það verði spennandi að takast á við þetta verkefni. Ég tel að reiðhjólaverslun og útivistarvörumerki vinni vel saman og að það verði gaman að sjá Cintamani spreyta sig á nýjum stað, við hlið annara vörumerkja.“

Haft er eftir Guðmundi Ágústi Péturssyni, stofnanda GÁP að það sé erfitt en jafnframt spennandi að afhenda stóran hluta ævistarfsins til nýrra aðila. Hins vegar sé hann fullviss um að hjólabúðin muni vaxa og dafna í höndum nýrra eigenda.