Bandaríski bankinn Citibank, hefur verið sektaður um 100 milljónir dollara af yfirvöldum í heimalandinu. Ástæða sektarinnar er sú að í kjölfar rannsóknar sem bandarísk yfirvöld gerðu, kom í ljós að bankinn hafi vísvitandi haft áhrif á Libor vexti. Libor vextir eru notaðir til að hjálpa til við að ákveða útlánsvexti víða um heim. Þetta kemur fram á vef CNN .

Yfirvöld vilja meina að bankinn hafi grætt milljónir dollara með þessari ólöglegu háttsemi.

Citibank er þriðji bankinn í Bandaríkjunum sem er sektaður af yfirvöldum fyrir þessar sakir, en Barclays og Deutsche Bank hafa einnig verið sektuð. Samtals hafa bankarnir þrír verið sektaðir um 420 milljónir dollara.