Risabankinn Citigroup ætlar sér að gera kauptilboð í GM Finance, fjármögnunararm bandaríska bílarisans General Motors, segir í frétt DowJones.

Rekstur General Motors hefur verið erfiður og hafa matsfyrirtæki lækkað lánshæfismat félagsins.

Citigroup vinnur að kauptilboðinu í samstarfi við vogunarsjóðinn Ceberus Capital Management. GM Finance er metið á 11,5 milljarða Bandaríkjadala