Bandaríski bankarisinn Citigroup hefur nú leitað til bandarískra stjórnvalda vegna óstöðugleika bankans.

Reuters fréttaveitan hefur þetta eftir ónefndum heimildarmanni en talsmenn Citigroup vildu ekki tá sig um málið.

Forsvarsmenn Citigroup hafa fundað með yfirmönnum Seðlabanka Bandaríkjanna og fjármálaráðuneitisins og farið yfir stöðu bankans. Citigroup vonast til fjárhagslegs stuðnings frá fyrrnefndum yfirvöldum í formi hlutafjáraukningar.