Bandaríski bankinn Citigroup hefur fært niður álit sitt á Kaupþingi [ KAUP ] og ráðleggur nú fjárfestum að selja í stað þess að halda eins og síðasta ráðlegging bankans sagði til um. Sænska viðskiptablaðið Dagens Industri segir frá þessu á vef sínum og vitnar þar til nýrrar skýrslu frá bankanum.

Þá hefur Citigroup fært verðmatsgengi Kaupþings niður úr 1000 í 625.