Ekkert lát er á uppsögnum hjá stóru fjármálafyrirtækjum. Royal Bank of Scotland tilkynnti fyrir skömmu að bankinn mundi segja upp 3000 manns og nú hefur Citygroup bæst við og ætlar að segja upp 10.000 manns.

Citugroup tilkynnti í síðasta mánuði áform um að segja upp 11.000 starfsmönnum á þriðja ársfjórðungi 2008 og hefur því fækkað starfsfólki um 23.000 á árinu. Áætlanir félagsins gera ráð fyrir að starfsfólki munu fækka úr 352.000 í 290.000 fyrir lok september á næsta ári.