Jeremy Clarkson hefur staðfest það að hann mun snúa aftur á litla skjáinn með nýjum bílaþætti. Top Gear meðstjórnendur hans Richard Hammond og James May munu einnig vera með í þáttunum.

Búist er við tilkynningu á næstu vikum um hvaða stöð verður með þáttinn. Orðrómar eru um það að þátturinn verði á Netflix. Tríóið hefur fundað með nokkrum framleiðslufyrirtækjum síðastliðnar vikur meðal annars breska framleiðandanum ITV, en Netflix er talið líklegra til að fá þáttinn.

Fyrir stuttu var tilkynnt um það að útvarpsmaðurinn Chris Evans yrði nýr þáttastjórnandi Top Gear. Nýjasta sería þáttarins sem er sú tuttugusta og þriðja verður sú fyrsta án Clarkson.

Hætt var framleiðslu á Top Gear þáttunum skyndilega í mars vegna þess að Clarkson var rekinn. Í kjölfar þess sögðu Hammond og May upp.