Clint Eastwood, leikari og fyrrum bæjarstjóri í Carmel í Kaliforníuríki, birtist í gær í auglýsingu til stuðnings Mitt Romney forsetaframbjóðenda Repúblíkana.
Auglýsingin mun birtast í þeim sjö ríkjum sem mjótt er á mununum milli Romney og Barack Obama. Alls mun auglýsingaherferðin kosta 13,6 milljónir dala, 1,7 milljarð króna.
Stuðningur Eastwood við Romney kemur engum á óvart. Leikarinn hélt ræðu á flokksþingi republíkana í ágúst þar sem hann talaði gegn Barack Obama, við misjafnar undirtektir áhorfenda.