Drykkjarvörufyrirtækið Coca-Cola hefur leitað til ýmissa einkafjárfestingasjóða (e. private equity) varðandi möguleika á því að leggja fram sameiginlegt yfirtökutilboð í bandarísku drykkjarvörueininguna Cadbury Snapple. Slík yfirtaka myndi fjölga verulega þeim drykkjartegundum sem Coca-Cola framleiðir, en fyrirtækið telur mikilvægt að styrkja stöðu sína á markaði með því að bjóða upp á ýmiss konar heilsudrykki, safa og vatn.