Coldwater Seafood Ltd., dótturfélag Icelandic Group[ IG ], hefur hafið lögbundinn 90 daga samningaferil varðandi endurskipulagningu á rekstri Coldwater í Redditch.  Ferillinn hefst á því að verkalýðsfélög á svæðinu, ásamt fulltrúum starfsmanna félagsins í Redditch, eru upplýstir um fyrirhugaða endurskipulagningu, segir í tilkynnnigu til Kauphallarinnar.

Á meðan á samningaferlinu stendur mun Coldwater Seafood skoða alla valkosti varðandi endurskiplagningu á rekstrinum.

Hjá Coldwater Seafood í Bretlandi starfa um 900 starfsmenn í þremur verksmiðjum, tvær eru í Grimsby og ein í Redditch.