Samkvæmt Hálf fimm réttum Kaupþings hefur Commerzbank, sem er að 4,25% hluta í eigu FL Group, selt franska dótturfélagið CCR til UBS fyrir um 435 milljónir evra, jafngildi 37,6 milljarða króna.

Áætlaður hagnaður Commerzbank af sölunni nemur um 150 milljónum evra, um þrettán milljörðum króna, en kaupin munu ganga í gegn á fyrsta ársfjórðungi 2008 að því gefnu að fjármálayfirvöld blessi viðskiptin.