Commerzbank staðfesti í gær að bankinn ætlaði að selja eignastýringar- og stjórnunareiningu Jupiter fyrirtækisins sem er staðsett í Bretlandi.

Fjárfestingarfélagið TA Associates er kaupandi að Jupiter og er söluverðið 740 milljónir punda, sem er nokkuð vel yfir því verði sem hafði verið greint frá í fjölmiðlum undanfarna viku. Salan mun ganga í gegn næstkomandi júní.