Commerzbank sem er annar stærsti viðskiptabanki Þýskalands tapaði  687 milljónum evra, um 110 milljörðum kr, á þriðja ársfjórðungi í sambanburði við 113 milljóna evra hagnaði á sama tíma í fyrra.

Bankinn þurfti að afskrifa skuldabréf sín á gríska ríkið um 52% á ársfjórðungnum. Tap bankans af afskriftinni nemur 798 milljónum evra.

Þýska ríkið á 25% í bankanum.

Commerzbank í Þýskalandi.
Commerzbank í Þýskalandi.
© Gunnhildur Lind Photography (Gunnhildur Lind Photography)