Svissneska flugfélagið Condor hefur tilkynnt að hætt hafi verið við áætlunarflug til Akureyrar og Egilsstaða frá Frankfurt sem hefjast átti um miðjan maí og standa fram í október.

Í tilkynningu Isavia innanlandsflugvalla segir að mikil vinna hafi verið unnin í tengslum við flugið af hálfu heimamanna og Condor. Stefnt sé að því að nýta þann undirbúning fyrir árið 2024. „Það skýrist betur á næstu vikum.“

„Því miður gekk verkefnið með Condor ekki upp í ár en við bindum vonir við að af millilandaflugi milli Þýskalands og Norður- og Austurlands verði árið 2024,“ segir Sigrún Björk Jakobsdóttir, framkvæmdastjóri Isavia Innanlandsflugvalla.

„Það eru margir þættir sem leiddu til þessar niðurstöðu, markaðssetningin erlendis hófst ekki nógu snemma til að ná flugi fyrir árið í ár og breyttar markaðsforsendur áttu einnig sinn þátt í að svona fór. Áhugi flugfélaga á millilandaflugi til Norður- og Austurlands fer stöðugt vaxandi, við finnum það mjög sterkt á ferðakaupstefnum og vinnustofum erlendis.”

Tilkynnt var um áform Condor í júlí í fyrra. Að mati flugfélgagsins hefði fyrirvarinn þurft að vera enn lengri til að tryggja betur bókanir frá ferðaskrifstofum.

„Reynslan sýnir að þetta er langhlaup og flugfélög eru varkár í sínum ákvörðunum um nýja áfangastaði og flugleiðir og það þarf töluvert úthald til að láta hlutina ganga upp. Það er afar mikilvægt að halda áfram að bjóða upp á aðgengi að landinu í gegnum nýjar gáttir í takti við stefnu stjórnvalda um að efla ferðaþjónustu í öllum landshlutum.

Það verður áfram helsta markmið okkar og sem fyrr segir er áhuginn greinilega til staðar. Framboð á millilandaflugi um Akureyrarflugvöll hefur aldrei verið meira og ferðaskrifstofur sem bjóða ferðir þangað hafa verið að fjölga ferðum, svo dæmi sé tekið,“ segir Sigrún Björk.