Íslenska fyrirtækið Controlant hlaut í dag Nýsköpunarverðlaun Íslands árið 2020 sem veitt voru við hátíðlega athöfn í Hörpu nú rétt fyrir hádegið. Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra afhenti verðlaunin sem veitt hafa verið framsæknum nýsköpunarfyrirtækjum frá 1994.

Á meðal viðskiptavina félagsins eru mörg af stærstu lyfjafyrirtækjum heims. Lausnir félagsins verða mikilvægur hlekkur í dreifingu bóluefna við COVID-19 sem er eitt erfiðasta heilbrigðisvandamál sem heimsbyggðin er að fást við.

Í rökstuðningi dómnefndar segir meðal annars:

„Hug- og vélbúnaður Controlant tryggir gæði viðkvæmra vara í flutningi og dregur úr sóun á lyfjum og matvælum. Controlant gefur framleiðendum lyfja og matvæla mikilvægar rauntímaupplýsingar um hitastig og raka sem fást með nettengdum gagnaritum.

Áralöng fjárfesting í tækniþróunarstarfi er að skila sér um þessar mundir í hröðum vexti tekna og er starfsemin komin til rúmlega 100 landa. Á meðal viðskiptavina félagsins eru mörg af stærstu lyfjafyrirtækjum heims. Lausnir félagsins verða mikilvægur hlekkur í dreifingu bóluefna við COVID-19 sem er eitt erfiðasta heilbrigðisvandamál sem heimsbyggðin er að fást við.“

Jafnframt er það er mat dómnefndar að Controlant  sé verðugur handhafi Nýsköpunarverðlauna Íslands árið 2020 og framundan séu spennandi tímar vaxtar og sóknar á mörkuðum.

„Það er okkur mikill heiður að fá þessi nýsköpunarverðlaun og við erum þakklát nýsköpunarsamfélaginu á Íslandi fyrir þessa viðurkenningu. Við erum afskaplega stolt af þeirri frábæru vinnu sem starfsfólk okkar hefur unnið til að gera Controlant lausnina mikilvæga fyrir viðskiptavini okkar,” segir Gísli Herjólfsson, stofnandi og framkvæmdarstjóri Controlant.

„Okkar vegferð er gott dæmi um hvernig tækni og nýsköpun getur skipt sköpum í lífi fólks. Hvort sem það er með því styðja við aðfangakeðjuna sem kemur lyfjum, bóluefnum og matvælum á áfangastað eða með því að stuðla að umhverfisvænni starfsháttum.”

Controlant hefur vaxið hratt undanfarið en félagið hefur nýlega lokið við hlutafjárútboð þar sem söfnuðust tveir milljarðar króna. Alls hefur félagið því safnað sam¬tals 3,5 milljörðum í gegnum hlutafjárútboð og breytileg skuldabréf á árinu.

Nýlegir samningar sem Controlant hefur gert munu tífalda veltu fyrirtækisins í um 4-5 milljarða á næstu tveimur árum.
Controlant leggur áherslu á áframhaldandi þróunarstarf og hefur starfsmönnum félagsins fjölgað mjög og er fyrirséð að félagið mun stækka áfram til að mæta aukinni eftirspurn eftir afurðum fyrirtækisins en starfsmenn eru um 100 um þessar mundir.