Alls safnaði Controlant tveimur milljörðum króna í hlutafjárútboði félagsins og var veruleg umframeftirspurn af nýju hlutafé. Frá þessu er greint í fréttatilkynningu en um er að ræða upplýsingatæknifyrirtæki sem þróað hefur hugbúnaðarlausnir með sérstaka áherslu á lyfjaiðnaðinn. Félagið mun taka þátt í dreifingu á bóluefni gegn Covid-19.

„Innlendir stofnanafjárfestar, úr hópi tryggingafélaga og lífeyrissjóða, tóku þátt, þar á meðal Sjóvá og Vátryggingafélag Íslands, auk núverandi hluthafa og annarra innlendra og erlendra fjárfesta. Controlant hefur þar með safnað hátt í þremur og hálfum milljarði króna á þessu ári í formi hlutafjár og breytanlegra skuldabréfa,” kemur fram í fréttatilkynningu félagsins. Arion banki hafði umsjón með útboðinu.

„Controlant verður í lykilhlutverki í dreifingu á bóluefni gegn COVID-19, sem viðskiptavinir Controlant stefna að því að dreifa fyrir lok árs og á fyrri hluta næsta árs, en félagið hefur þróað rauntímalausnir til að fylgjast með hitastigi og staðsetningu á viðkvæmum vörum í flutningi og geymslu,” kemur enn fremur fram.

Félagið gerir ráð fyrir tæplega fimm milljarða króna veltu á næsta ári og hefur veltan tífaldast frá árinu 2019. Starfsmenn Controlant eru nú um eitt hundrað talsins og félagið hefur á undanförnum misserum náð samningum við sex af stærstu lyfjafyrirtækjum í heimi.

„Vöxtur Controlant hefur farið langt fram úr áætlunum á þessu ári og var því ákveðið að ráðast í hlutafjáraukningu nú í haust, fyrr en gert hafði verið ráð fyrir. Við stefndum á að safna einum milljarði króna en eftirspurn var ríflega tvöföld. Þá er afskaplega ánægjulegt að segja frá því að lausn Controlant verður notuð til að halda utan um dreifingu á COVID-19 bóluefni um allan heim,“ er haft eftir Guðmundi Árnasyni, fjármálastjóra Controlant.