Jeremy Corbyn hlaut 61,8% atkvæða í leiðtogakjöri breska Verkamannaflokksins, sem lauk í morgun. Hann heldur því embættinu, en mótframbjóðandi hans, Owen Smith, hlaut 38,2% atkvæða.

Niðurstaðan þykir festa í sessi þann klofning sem í ljós hefur komið milli almennra flokksmanna og þingflokksins, en formannskjörið fór fram eftir að mikill meirihluti þingmanna flokksins lýsti yfir vantrausti á Corbyn.