Ramón Vila hóf í vikunni störf hjá íslenska lyfjafyrirtækinu Coripharma sem Head of Portfolio Management. Hann verður staðsettur í Madríd og er fyrsti starfsmaður fyrirtækisins á erlendri grundu. Frá þessu er greint í fréttatilkynningu.

Ramón hefur mikla þekkingu og reynslu úr sambærilegum störfum í lyfjageiranum, en hann vann m.a. hjá Actavis, bæði á Spáni, og í höfuðstöðvunum í Zug sem sviðsstjóri sölu- og markaðssviðs í vestur Evrópu. Þá hefur hann starfað hjá fyrirtækjum eins og Hexal AG og Sandoz (Novartis Group) sem sviðsstjóri viðskiptaþróunar, og sem framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs í suður Evrópu hjá sænska fyrirtækinu Bluefish Pharmaceuticals.

Ramón er lyfjafræðingur frá Complutense háskóla í Madrid & Rheinische Friedrich-Wilhelms-Universität Bonn, og er að auki með Executive MBA gráðu frá IE Business School í Madrid.