Costco eldsneyti var með marktækt hæstu einkunn allra fyrirtækja sem mæld voru í Ánægjuvoginni þetta árið og eru viðskiptavinir eldsneytissölu Costco þar af leiðandi þeir ánægðustu á Íslandi.

Góður árangur mældist almennt hjá fyrirtækjum í Ánægjuvoginni sem birt var í dag, þrátt fyrir COVID ástandið, en þetta er tuttugasta og annað árið sem ánægja íslenskra fyrirtækja er mæld með þessum hætti.

Íslenska ánægjuvogin er í eigu Stjórnvísi og sáu Zenter rannsóknir um framkvæmd rannsóknarinnar. Önnur fyrirtæki sem skoruðu hátt voru Krónan, Byko, Sjóvá og Ikea, hvert á sínum markaði.

Sex fyrirtæki marktækt hæst á sínum markaði

Á eldsneytismarkaði fékk eldsneytissala Costco 85,8 stig af 100 mögulegum, Nova fékk 78,5 á farsímamarkaði, Krónan var hæst allra á matvörumarkaði með 74,2 stig, BYKO fékk 68,2 á byggingavörumarkaði, Sjóvá fékk 72,6 stig á tryggingamarkaði og var IKEA hæst allra fyrirtækja á smásölumarkaði með 78,0 stig.

Efstu fyrirtækin á mörkuðum þar sem ekki var marktækur munur á efsta og næstefsta sæti fengu einnig viðurkenningu fyrir góðan árangur; hjá raforkusölum var Orka náttúrunnar hæst með 67,2 stig, Landsbankinn var með 66,3 stig á bankamarkaði, Penninn Eymundsson var með 73,2 stig á ritfangamarkaði, Apótekarinn var með 74,4 stig á lyfsölumarkaði, Heimilistæki með 74,2 stig hjá raftækjaverslunum og Smáralind með 71,6 hjá verslunarmiðstöðum.

Niðurstöður 37 fyrirtækja birtar

Í tilkynningu Stjórnvísi segir að sigur í Ánægjuvoginni sé eftirsóknarverður fyrir fyrirtæki og að mikill heiður sé að vera hæstur á sínum markaði í Íslensku ánægjuvoginni. Íslenska ánægjuvogin er mælikvarði á ánægju viðskiptavina sem er mæld reglulega yfir árið og gagnast fyrirtækjum sem mælikvarði á þeirra frammistöðu á milli ára og í samanburði við helstu samkeppnisaðila.

Þau fyrirtæki sem vinna sinn flokk fá að nota merki Íslensku ánægjuvogarinnar á sínu markaðsefni sem og njóta heiðursins. 37 fyrirtæki í 13 atvinnugreinum voru mæld. Að þessu sinni eru niðurstöður birtar fyrir 37 fyrirtæki í 13 atvinnugreinum og byggja niðurstöður á um 200-1.000 svörum viðskiptavina hvers fyrirtækis.

Líkt og undanfarin sex ár er viðurkenningarskjal veitt þeim fyrirtækjum sem eru með tölfræðilega marktækt hæstu einkunnina í viðkomandi atvinnugrein, þ.e. þar sem segja má með 95% vissu að viðskiptavinir fyrirtækisins með hæstu einkunnina séu að jafnaði ánægðari en viðskiptavinir fyrirtækisins með næsthæstu einkunnina.