Bandaríski smásölurisinn Costco mun opna verslun í Kauptúni 3 í Garðabæ á næsta ári, að sögn Gunnars Einarssonar bæjarstjóra Garðabæjar. Þetta kemur fram í Morgunblaðinu .

Verslunin verður staðsett við hlið IKEA og segir Gunnar að Costco hafi í hyggju að byggja við þann hluta hússins sem fyrirtækið mun kaupa.

„Þeir sögðu mér að verðið hjá þeim yrði það lægsta sem byðist hér á landi. Við eigum að fagna þessu,“ segir Gunnar sem telur mögulegt að verslunin opni á fyrrihluta næsta árs.