Svissneska fjármálafyrirtækið Credit Suisse Group hefur keypt meirihluta í brasilíska eignastýringa- og fjármálafyrirtækinu Hedging-Griffo, segir í frétt Dow Jones.

Credit Suisse keypti 50% og einn hlut að auki fyrir 20,5 milljarða króna, með þeim möguleika að kaupa eftirstandandi hluti eftir fimm ár, kjósi hluthafar að selja.

Credit Suisse hefur stefnt að því að tryggja sér viðskipti á nýjum mörkuðum, og eru kaupin í Brasilíu hluti af þeirri stefnu.