„Ef þú getur ekki sýnt fram á hver þú ert þá vill auðvitað enginn lána þér,“ segir Reynir Grétarsson, forstjóri Creditinfo Group, sem á í samstarfi við VoLo Africa í Afríku.

Fram kemur tilkynningu að Creditinfo hafi á undanförnum árum vaxið fiskur um hrygg í Afríku og það hlotið mikla athygli fyrir uppbyggingu sína á fjármálamörkuðum á þróunarstigi. VoLo hefur hins vegar komið á fót gagnagrunni um einstaklinga í Senegal og Gambíu sem byggir á fingraförum þeirra og er einstakur í þessum hluta álfunnar. Unnið hefur verið að samstarfinu í samráði við og með stuðningi Þróunarbanka Afríku (African Development Bank Group) í þeim tilgangi að treysta undirstöður og faglega innviði fjármálastarfsemi í heimsálfunni.

Haft er eftir Reyni í tilkynningunni að eitt meginvandamálið við innviði fjölmargra ríkja í Afríku sé það að fólk hafi engin persónuskilríki og eigi því erfitt með að gera grein fyrir sér. Það geri alla fjármálastarfsemi þunga í vöfum og lánveitendum erfitt um vik.

Fyrst í stað verður lögð áhersla á starfsemi Creditinfo VoLo í Gambíu og Senegal þar sem búa samtals um 16 milljónir manna auk þess sem Creditinfo Cape Verde rennur saman við hið nýja fyrirtæki. Cape Verde er eyjaklasi vestan Gambíu við vesturströnd Afríku þar sem fólksfjöldinn er um hálf milljón. Creditinfo Cape Verde var stofnað 2012.