Daði Kristjánsson og Adrian Sabido, sem hafa starfað í markaðsviðskiptum Arctica Finance síðustu þrjú ár, hafa sagt upp störfum hjá Arctica og gengið til liðs við verðbréfafyrirtækið Fossa markaði. Þetta kemur fram í Fréttablaðinu . Gert er ráð fyrir að þeir muni hefja störf hjá Fossum eftir þrjá mánuði.

Með ráðningu Daða og Adrian eru Fossar að bregðast við brotthvarfi þriggja verðbréfamiðlara fyrr á árinu þegar þeir Þorbjörn Atli Sveinsson, Gunnar Freyr Gunnarsson og Rúnar Steinn Benediktsson hættu störfum hjá félaginu.

Daði og Adrian, sem tóku til starfa hjá Arctica þegar félagið keypti H.F. Verðbréf haustið 2015, hafa undanfarin ár verið lykilstarfsmenn í markaðsviðskiptum verðbréfafyrirtækisins. Daði var áður framkvæmdastjóri H.F. Verðbréfa.