Daði Magnússon hefur verið ráðinn til hugbúnaðarfyrirtækisins Smartmedia sem forritari, en þar mun koma hann koma inn í þróunarteymi félagsins til að styðja við vöxt þess. Daði er kunnugur fyrirtækinu en hann starfaði hjá Smartmedia á árunum 2012-2016.

Daði lauk BSc námi við Háskólann í Reykjavík í Tölvunarfræði og hefur frá þeim tíma meðal annars starfað hjá Umferðarstofu og Arctic Adventures, ásamt því að hafa stofnað fyrirtækið Hey Digital sem sérhæfði sig í markaðssetningu á netinu. Hey Digital rann inn í stafrænu auglýsingastofuna Sahara árið 2018.

Daði segir að hann sé ánægður að vera kominn aftur til Smartmedia og spenntur á að takast á við spennandi og krefjandi verkefni.

„Ég er ánægður með þær áherslubreytingar hjá Smartmedia að setja fókus á vefverslanir og tel ég möguleikana mikla á því sviði að koma með lausnir sem muni nýtast viðskiptavinum vel,” segir Daði.

Hjörvar Hermannsson, framkvæmdastjóri Smartmedia segir frábært að fá Daða til starfa enda framundan margvísleg verkefni hjá félaginu.

„Það er gott að fá Daða inn inn í forritunarteymið til að styðja við þann vöxt sem hefur átt sér stað hjá Smartmedia og viðskiptavinum okkar” segir Hjörvar. „Daði starfaði hjá Smartmedia fyrir nokkrum árum og þekkir því vel inná kerfin okkar ásamt því að hafa í millitíðinni aflað sér fjölbreytta reynslu á sviði markaðsetningar á netinu sem á eftir að nýtast okkur vel.“