Verð á eldsneyti á bensínstöðvum Dælunnar hefur hækkað aftur eftir að félagið lækkaði verð sitt í síðustu viku. Frá þessu var fyrst greint á vef mbl .
Var félagið þá að bregðast við samkeppni frá Orkunni sem lækkaði verð á tveimur stöðvum. ÓB fylgdi í kjölfarið með lækkun á þremur stöðvum.
Í um það bil eitt ár hefur Atlantsolía við Kaplakrika boðið upp á sambærilegt verð og Costco hefur boðið upp á fyrir viðskiptavini með Costco aðildarkort.
Er verð á bensíni á þessum fimm stöðvum Dælunnar nú komið upp í 219,9 krónur á lítra, meðan verð á hinum stöðvunum sem nefndar hafa verið er um 211 krónur á lítra.