Verjendur  í al-Thani málinu fengu dæmdar samtals 88,7 milljónir króna í málsvarnarlaun þegar dómurinn var kveðinn upp í dag.

Hæst málsvarnarlaun fékk Hörður Felix Harðarson, verjandi Hreiðars Más Sigurðssonar. Hann fékk 33,5 milljónir króna. Næst hæst fékk Karl Axelsson, verjandi Magnúsar Guðmundssonar, eða 20,6 milljónir króna. Því næst kemur Þórólfur Jónsson, verjandi Ólafs Ólafssonar, með 14,7 milljónir króna og Gestur Jónsson, verjandi Sigurðar Einarssonar, með 10,8 milljónir króna.

Bæði Gestur Jónsson og Ragnar Hall sögðu sig frá málinu áður en aðalmeðferð hófst. Ragnar Hall, verjandi Ólafs, fær 5,9 milljónir og Ólafur Eiríksson, sem var verjandi Sigurðar á síðari stigum málsins, fær 3,5 milljónir.