Dagný Guðmundsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Ólafs Gíslasonar & co., Eldvarnarmiðstöðvarinnar og Rafborgar. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Dagný, sem er með viðskiptafræðipróf frá Viðskipta- og tækniskólanum, kemur til Ólafs Gíslasonar & co. frá Cintamani, þar sem hún var framkvæmdastjóri. Þar áður var Dagný m.a. framkvæmdastjóri Iceland Travel Assistance og forstöðumaður fyrirtækjasviðs hjá Vodafone.

„Þetta er fyrirtæki í góðum rekstri með flottan hóp innanborðs og ég hlakka til að stýra áframhaldandi uppbyggingu þess,“ segir Dagný í tilkynningunni.

„Ég hef áður unnið að öryggismálum á öðru formi en ég er að gera núna og það er að mörgu að huga í þessum efnum - enda öryggi okkur öllum nauðsynlegt. Við hjá Ólafi Gíslasyni & co. eigum fullt inni enda mikill hraði í geiranum og breytingar og nýjungar eftir því.“

Ólafur Gíslason & co. var stofnað árið 1923 en árið 1974 keypti félagið Eldvarnamiðstöðina og Rafborg árið 1997. Félögin flytja inn eldvarnarbúnað fyrir slökkvilið landsins, heimili og fyrirtæki. Má þar meðal annars nefna sprengiefni, skúffu- og skjalaskápa, slökkvitæki og allar stærðir og gerðir af rafhlöðum.