Dótturfélag Dagsbrúnar, Daybreak Acquisitions Limited, hefur fengið skuldbindandi samþykki frá hluthöfum breska fjölmiðlafyrirtækisins Wyndeham Press Group PLC um kaup á 77,06% af útgefnu hlutafé í félaginu, að því fram kemur í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Tilboðið, sem háð er þeim skilyrðum sem greint var frá í yfirtökutilboði til hluthafa þann 24. mars 2006, hefur verið framlengt um 14 daga.

Fyrirtækið, sem er skráð í kauphöllina í London, er metið á 80 milljónir punda (9,96 milljarðar íslenskra króna).

Wyndeham Press sérhæfir sig í útgáfu fagtímarita og gefur út um 600 tímarit. Landsbankinn aðstoðaði Dagsbrún við gerð kauptilboðsins og sér um fjármögnun.