Stjórn Dagsbrúnar hefur ákveðið að nýta heimild til hækkunar hlutafjár vegna kaupréttarskuldbindinga félagsins og vegna kaupa á hlutum í öðrum félögum, samtals krónur 42.437.140, segir í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Heildarhlutafé félagsins eftir hækkun er 5.071.698.634. Hækkun tekur gildi þegar hún hefur verið skráð í fyrirtækjaskrá.