Dagsbrún hf. hefur stofnað dótturfélagið Ódýra símafélagið ehf. Félagið er lággjalda farsímafyrirtæki sem býður upp á farsímaþjónustu undir vörumerkinu Sk segir í tilkynningu til Kauphallarinnar. Félagið er rekið sem sjálfstæð eining innan Dagsbrúnar en kaupir aðgang að kerfum Og Vodafone. Framkvæmdastjóri félagsins er Liv Bergþórsdóttir.

"Sko byggir í raun á sömu hugmyndafræði og rekstur lággjalda flugfélaga. Í stað þess að leggja fjármagn í kostnaðarsama uppbyggingu og yfirbyggingu einbeitir Sko sér að einfaldleika og lægra verði en fær tækniþjónustu og aðgang að dreifikerfi hjá öðrum," segir Liv.