Dagsbrún hf. hefur stofnað félagið 365 Media Scandinavia A/S í Danmörku. Markar stofnun félagsins fyrstu skref félagsins í átt að útgáfu fríblaðs í líkingu við Fréttablaðið í Danmörku segir í tilkynningu til Kauphallarinnar. Félagið hefur áður lýst yfir áætlunum sínum um útrás á erlenda markaði með áherslu á Norðurlönd og Bretland.
365 Media Scandinavia A/S er ætlað að taka yfir þá vinnu sem lögð hefur verið í undirbúning að stofnun nýs dagblaðs í Danmörku innan Dagsbrúnar. Næstu skref eru að ráða stjórnendur til félagsins og mun það verða gert á næstu dögum. Auk undirbúnings að stofnun nýs dagblaðs mun 365 Media Scandinavia A/S vinna stofnun fyrirtækis utan um dreifikerfi hins nýja dagblaðs.
"Vinnan við undirbúning að útgáfu nýs dagblaðs er komin það langt að rétt er að áframhald hennar verði innan sérstakt félag í Danmörku. Þetta félag mun jafnframt verða vettvangur okkar til að skoða önnur tækifæri á fjölmiðlamarkaði á Norðurlöndum," segir Gunnar Smári Egilsson, forstjóri félagsins.