Tap Dagsbrúnar nam 3.156 milljónum króna á þriðja ársfjórðungi samanborið við 233 milljón króna hagnað á sama tímabili fyrir ári síðan.

Á fyrstu níu mánuðum ársins nam tapið 4.678 milljónum króna en á sama tímabili fyrir ári hagnaðist félagið um 554 milljónir króna.

Rekstrartap fyrir fjármagnsgjöld nam 2.069 milljónum króna á fyrstu níu mánuðum ársins til samanburðar við 1.214 milljóna króna hagnað á sama tímabili 2005.

Gjaldfært virðisrýrnunartap vegna viðskiptavildar nam 2.500 milljónum á 3. ársfjórðungi.

Tekjur á þriðja ársfjórðungi námu 15.956 milljónum króna og jukust um 12.101 milljón frá sama tímabili 2005.

Tekjur Dagsbrúnar námu alls 36.132 milljónum króna á fyrstu níu mánuðum ársins til samanburðar við 10.866 milljónir kr. á sama tímabili 2005.

Eiginfjárhlutfall var 16,6% 30. september 2006 en var 38,4% í lok síðasta árs.

EBIT hagnaður af fjarskiptasviði nam 1.242 milljónum króna á fyrstu níu mánuðum ársins. Önnur svið skiluðu EBIT tapi. EBIT tap fölmiðasviðs nam 1.963 á tímabilinu, EBIT tap upplýsingatæknisviðs nam 428 milljónum og EBIT tap af fjárfestingarstarfssemi nam 920 milljónum króna.

EBITDA af reglulegri starfssemi fyrir óvenjulega liði fyrstu níu mánuði ársins nam 3.789 milljónum króna samanborið við 2.319 milljónir króna fyrir sama tímabil 2005. Óvenjulegir liðir sem höfðu áhrif á EBITDA á fyrstu níu mánuðum ársins námu 1.191 milljón króna og varð því EBITDA að teknu tilliti til þeirra liða 2.598 milljónir króna.

EBITDA af reglulegri starfssemi fyrir óvenjulega liði á þriðja ársfjórðungi nam 1.693 milljónum króna en óvenjulegir liðir sem höfðu áhrif á EBITDA ársfjórðungsins námu 1.007 milljónum króna.