Sigrún Stefánsdóttir hætti í dag sem dagskrárstjóri RÚV. Stöður dagskrárstjóra Rásar 1 og Rásar 2 verða auglýstar í vikunni. Margrét Marteinsdóttir, yfirmaður dægurmáladeildar fréttastofu RÚV, mun þangað til sinna starfi Sigrúnar sem sneri að útvarpshluta RÚV en Bjarni Guðmundsson, framkvæmdastjóri Sjónvarps, gegna þeim sjónvarpshlutanum í starfi Sigrúnar.

Páll Magnússon útvarpsstjóri tilkynnti brotthvarf Sigrúnar í hádeginu, að því er fram kemur á vefsíðu RÚV .