Dagur B. Eggertsson opnar kosningarmiðstöð að Austurstræti 17, annarri hæð, á laugardaginn klukkan þrjú, segir í fréttatilkynningu.

Dagur sækist eftir því að leiða lista Samfylkingarinnar í borgarstjórnarkosningunum í vor og markar opnun miðstöðvarinnar upphaf kosningabaráttunnar, segir í tilkynningunni.

Ragnheiður Gröndal mun leika og syngja við opnunina, að auki verður óvænt uppákoma fyrir börn og flutt verða stutt ávörp. Einnig verður boðið upp á kaffi og kökur.

Kosningamiðstöðin verður opin alla daga fram að prófkjöri, frá morgni til kvölds.

Prófkjör Samfylkingarinnar vegna borgarstjórnarkosninga verður haldið 10. og 11. febrúar.