Dagur B. Eggertsson, varaformaður Samfylkingarinnar styður Guðbjart Hannesson í kjöri til formanns Samfylkingarinnar. Þetta kom fram í máli Dags í Silfri Egils í dag. Dagur hefur jafnframt lýst því yfir að hann hyggist ekki sækjast eftir endurkjöri til varaformanns flokksins.

Þeir Guðbjartur og Árni Páll takast nú á um embættið. Kosningin er rafræn og hófst síðastliðinn föstudag en henni lýkur mánudaginn 28. janúar.

Oddný G. Harðardóttir lýsti því yfir á stefnuþingi Samfylkingarinnar að hún ætli að bjóða sig fram til varaformanns Samfylkingarinnar.