Dagur B. Eggertsson, Björk Vilhelmsdóttir, Hjálmar Sveinsson og Kristín Soffía Jónsdóttir hlutu bindandi kosningu hjá Samfylkingunni fyrir borgarstjórnarkosningar í vor. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Samfylkingunni.

Kosningu lauk kl. 18:00 í dag og neyttu 1732 félagsmenn atkvæðisréttar síns í flokksvalinu. Kjörsókn var 30,74%. Auð og ógild atkvæði voru 30.

Atkvæði á þá fjóra frambjóðendur sem hlutu bindandi kosningu: 1. sæti Dagur B. Eggertsson með 1421 atkvæði i það sæti, eða 82,2 %. 2. sæti Björk Vihelmsdóttir með 1002 í fyrst og annað sæti. 3. sæti Hjálmar Sveinsson með 501 í fyrsta til þriðja sæti. 4. sæti Kristín Soffía Jónsdóttir með 665 í fyrsta til fjórða sæti.