Hlutabréf hafa hækkað í Evrópu það sem af er degi. FTSEurofirst 300 vísitalan hefur hækkað um 1% en vísitalan hækkaði um 6% í apríl sem er besti mánuður frá því í september 2003 að sögn Reuters fréttastofunnar.

Það eru helst bankar og fjármálafyrirtæki sem leiða hækkanir dagsins.

Í Lundúnum hefur FTSE 100 vísitalan hækkaðu m 1,1%, í Amsterdam hefur AEX vísitalan hækkað um 0,6%, í Frankfurt hefur DAX vísitalan hækkað um 1,2% og í París hefur CAC 40 vísitalan hækkað um 1,1%.

Í Kaupmannahöfn hefur OMXC vísitalan hækkað um 1,4% og í Osló hefur OBX vísitalan hækkað um 0,5%.