Hlutabréf hafa hækkað það sem af er degi í Evrópu og segir Reuters fréttastofan jákvæð uppgjör Ericsson og Volvo vera helstu ástæðu hækkana. FTSEurofirst 300 vísitalan hefur hækkað um 1% það sem af er degi.

Í Lundúnum hefur FTSE 100 vísitalan hækkað um 0,4%, í Amsterdam hefur AEX vísitalan hækkað um 0,7% en í Frankfurt og París hafa  DAX og CAC 40 vístölurnar hækkað um 1%.

Þá hefur OBX vísitalan í Osló og OMXC vísitalan í Kaupmannahöfn hækkað um 1%.