Þýski bílaframleiðandinn Daimler, sem framleiðir m.a. Mercedes-Benz, sendi frá sér afkomuviðvörun í gær þar sem fram kemur að fyrirtækið muni ekki ná settu marki og verði afkoman einum milljarði evra minni á árinu en stefnt var að.  Ekki er gert ráð fyrir því að staðan batni mikið á næsta ári.

Fram kemur í afkomuviðvöruninni, sem m.a. breska blaðið Guardian fjallar um, að aðstæður séu erfiðar á mörkuðum, ekki síst á meginlandi Evrópu. Bílaframleiðandinn ætlar að koma til móts við minni eftirspurn eftir bílum með hægræðingu og niðurskurði á næstu tveimur árum sem á að spara fyrirtækinu tvo milljarða evra.