Daníel Jakobsson hefur verið ráðinn til að stýra lausu fé hjá Lánasjóði Sveitarfélaga. Þetta kemur fram á vef Lánasjóðs Sveitarfélaga .

Daníel Jakobsson hefur verið ráðinn til að stýra lausu fé hjá Lánasjóði Sveitarfélaga.
Daníel Jakobsson hefur verið ráðinn til að stýra lausu fé hjá Lánasjóði Sveitarfélaga.
© Aðsend mynd (AÐSEND)

Hann hefur starfað á fjármálamarkaði frá árinu 2007 og á árunum 2009 til 2017 hjá slitastjórn Kaupþings. Daníel hefur frá 2017 starfað hjá fjárfestingafélaginu LCE og Fons Juris.

Daníel er með M.Sc. próf í stærðfræðilegum fjármálum frá Cass Business School í London og B.Sc. í vélaverkfræði frá Háskóla Íslands. Hann er auk þess með próf í verðbréfaviðskiptum. Daníel er giftur Maríu Kristinsdóttur og eiga þau tvær dætur.