Daníel Ólafsson, sérfræðingur í markaðssetingu á netinu, hefur verið ráðinn til auglýsingastofunnar ENNEMM. Meðal verkefna Daníels á ENNEMM eru markaðsstarf með samfélagsmiðlum, bestun og birtingar á leitarvélum og árangursmælingar auk þess að veita sérfræðiráðgjöf við stefnumótun, hugmyndavinnu og birtingastjórn fyrir viðskiptavini ENNEMM. Hann hefur lokið viðskiptafræði frá Háskóla Íslands og hefur starfað að markaðsmálum á netinu undanfarin ár. Meðal annars hefur hann unnið fyrir Icelandair, Domino´s, Bláa lónið, 66°norður og fleiri vörumerki, fyrst hjá Kansas og síðar hjá Janúar markaðshúsi.

Helstu viðskiptavinir auglýsingastofunnar ENNEMM eru Íslandsbanki, Síminn, Ölgerðin, BL, VÍS, Vínbúðin, Icelandair Hotels, Orka náttúrunnar og MS.