Danska ríkisútvarpið (DR) þarf að fækka starfsmönnum um 170-200 ákvörðunar danska þingsins fyrr á árinu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá DR.

Þingið ákvað fyrr á árinu að DR spari 161 milljónir danskra króna á ári, um 3,2 milljarða íslenskra króna.

Samkvæmt frétt Börsen hefur ekki verið ákveðið hvenær kemur til uppsagna.

Við ákvörðun um hverjir missa vinnunna verður lögð sérstök áhersla á að hlífa efni fyrir börn og unglinga.