Ístak hf., dótturfélag Landsbankans hf., hefur selt fyrirtækið Ístak Ísland ehf. danska verktakafyrirtækinu Per Aarsleff AS sem átti hagstæðasta tilboðið í félagið. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsbankanum.

Þar segir að kaupverðið sé trúnaðarmál. Söluferlið hófst með auglýsingu þann 22. janúar 2015 og var opið öllum áhugasömum fjárfestum sem stóðust hæfismat og gátu sýnt fram á fjárfestingargetu umfram 500 milljónir króna.

Fram kemur í tilkynningunni að árstekjur Per Aarsleff AS nemu að jafnvirði um 170 milljörðum íslenskra króna. Félagið sinnir verktöku meðal annars á Grænlandi en nú einnig á Íslandi. Starfsmenn eru um 4.500 talsins.

Markaðssvæði Ístaks Íslands ehf. er Ísland, Grænland og Færeyjar. Félagið sérhæfir sig í verktöku á sviði virkjana, jarðgangna, hafnarmannvirkja, stærri iðnaðarmannvirkja og stálsmíði og er einn fárra innlendra valkosta þegar kemur að framkvæmdum og þjónustu við virkjanir og stóriðju.

Ístak hf. mun áfram sinna samningsbundnum verkefnum í Noregi.