Alistair Darling, fjármálaráðherra Bretlands, vonar að samkomulag Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og íslenskra stjórnvalda leiði til þess að allir eigendur innstæðna hjá íslensku bönkunum „fái sanngjarna meðferð” og ekki verður gerður greinarmunur á íslenskum ríkisborgurum og þeim sem eru með erlent ríkisfang.
Þetta kom fram í máli ráðherrans á breska þinginu áðan og ummælin eru höfð eftir honum á vef Dow Jones-fréttaveitunnar.