Davíð Stefánsson hefur hafið störf hjá Geysir Green Energy sem er ört vaxandi útrásarfyrirtæki í orkugeiranum. Þar mun hann stýra viðskiptaþróun fyrirtækisins. Davíð hefur starfað sem partner í fjármálaráðgjöf hjá Capacent undanfarin ár.

Davíð hef á undanförnum árum unnið að margvíslegum verkefnum tengdum orkumálum, bæði í ráðgjafarstörfum sínum hjá Capacent fyrir flest orkufyrirtæki landsins en einnig sem stjórnarformaður RES Orkuskóla á Akureyri.