Davíð Stefánsson, bókmenntafræðingur hefur ákveðið að gefa kost á sér í 2.-3. sæti í forvali VG í Reykjavík fyrir komandi Alþingiskosningar.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Davíð.
Davíð er 35 ára og í sambúð með Höllu Gunnarsdóttur.
„Það gildir um mig eins og marga aðra Íslendinga að bankahrunið vakti mig til lífsins,“ segir Davíð í tilkynningu.
„Ég hef alltaf haft áhuga á stjórnmálum og sterkar skoðanir á því hvernig samfélagið okkar er rekið. Framganga ýmissa stjórnmálamanna í kjölfar hrunsins leiddi í ljós að ýmislegt er athugavert við það hvernig samskiptum ráðamanna og almennings er háttað - það glitti skyndilega í djúpa og breiða gjá og valdaleysi venjulegra borgara varð áþreifanlegt og sársaukafullt.“