Davíð Oddsson utanríkisráðherra tilkynnti á blaðamannafundi sem stendur rétt í þessu að hann hyggist láta af störfum sem utanríkisráðherra 27. september næstkomandi og hætta sem formaður Sjálfstæðisflokksins. Hann yrði því ekki í framboði á næsta landsfundi flokksins. Jafnframt tilkynnti Davíð að hann ætlaði að setjast í stól formanns bankaráðs Seðlabankans 20. október næstkomandi.